Hoppa yfir valmynd
15. maí 2024 Matvælaráðuneytið

Samningur um landgræðsluskóga endurnýjaður til enda árs 2029

Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar og Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands færðu Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra íslenskar birkiplöntur við undirritun samningsins.  - mynd

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra, Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands og Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar, undirrituðu í dag, 15. maí, samning um framkvæmd landgræðsluskóga til enda árs 2029.

Landgræðsluskógar eru samstarfsverkefni ríkisins og skógræktarfélaganna. Markmið verkefnisins er að græða lítt og ógróið land með fjölbreyttum skógum og stuðla þannig að ræktun skóga til útivistar fyrir almenning, bættum kolefnisbúskap lands, endurheimt vistkerfa og eflingu líffræðilegrar fjölbreytni. Verkefnið hófst árið 1990 og var hleypt af stokkunum í tilefni 60 ára afmælis Skógræktarfélags Íslands.

Í verkefninu hefur verið unnið að ræktun landgræðsluskóga á um 150 svæðum um allt land og hafa alls verið gróðursettar frá upphafi liðlega 24,2 milljónir plantna á um 770 km2 svæði. Land og skógur hefur eftirlit með framkvæmd samningsins.

Langflest ræktunarsvæði landgræðsluskóga eru á landi í eigu sveitarfélaga, ríkis eða skógræktarfélaganna sjálfra. Skógræktarfélögin sjá um framkvæmd verkefnisins á hverjum stað, að útvega land, friðun og vörslu, gróðursetningu og umhirðu.

Samstarf ríkisins við skógræktarfélögin byggir á því að unnið sé að þeirri stefnu sem stjórnvöld hafa sett. Samningurinn styður við ýmis markmið Lands og lífs, stefnu stjórnvalda í landgræðslu og skógrækt.


Efnisorð

Heimsmarkmiðin

13. Aðgerðir í loftslagsmálum
17. Samvinna um markmiðin
15. Líf á landi
11. Sjálfbærar borgir og samfélög

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum