Endurkröfunefnd bifreiðatrygginga
Nefndin kveður á um hvort beita skuli endurkröfurétti vegna gáleysis eða ásetnings þess sem ábyrgð ber á tjóni sem vátryggingafélag hefur bætt samkvæmt umferðalögum. Hún starfar samkvæmt 96. grein umferðarlaga. ,
Skal einn nefndarmaður skipaður eftir tilnefningu vátryggingafélaga þeirra sem viðurkenningu hafa skv. 91. gr., einn eftir tilnefningu landssamtaka bifreiðaeigenda, og einn án tilnefningar, og er hann formaður nefndarinnar. Skipunartími nefndarinnar skal vera þrjú ár
Í nefndinni sitja (skipuð 2021-2024):
- Helgi Jóhannsson, formaður, án tilnefningar
- Edda Björk Andradóttir, tilnefnd af FÍB/SVÞ
- Jóna Björk Guðnadóttir, tilnefnd af Samtökum fjármálafyrirtækja
Til vara:
- Jóhann Fannar Guðjónsson, tilnefndur af FÍB/SVÞ
- Margrét Arnheiður Jónsdóttir, tilnefnd af Samtökum fjármálafyrirtækja
Póstfang nefndarinnar er: [email protected]